Orkunotkun Íslendinga er einstök, þar sem 80% af okkar orkunotkun er endurnýjanleg, frá jarðvarma og vatnsafli. Fimmtungur kemur frá jarðefnaeldsneyti sem knýr áfram skip, flugvélar og bifreiðar. Í örfáum köldum byggðarlögum sem hafa ekki aðgang að heitu vatni, eða reka loðuverksmiðjur á fullum afköstum í örfáar vikur í vorbyrjun, er notað jarðefnaeldsneyti . Það má segja að í heimunum fyrir utan Ísland, séu hlutföllin akkúrat öfug. Jarðefnaeldsneyti var á síðasta ári 76,5% af orkunotkun jarðarbúa, 19,7% var endurnýjanleg orka, meðan kjarnorka var 3,7%. Ísland framleiðir mikið af orku, 20TWh, sem er þó aðeins 1/1.500 heildarnotkun í heiminum, en setur okkur í fyrsta sæti í raforkuframleiðslu á mann, sæti á undan frændum vorum Norðmönnum. Árnar okkar, sumar beislaðar gefa okkur ómælda orku, sem er seld til stóriðju, í gagnaver, og til lýsa upp hýbýlin í skammdeginu. Hér koma nokkrar myndir af ám, víðs vegar um Ísland, ár sem gefa okkur bæði fegurð, gleði, og hreina orku. Já Ísland, Íslendingar eru… sannkallaðir orkuboltar.







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Ísland : 03/03/2026 : RX1R II, A7R IV – 2.035mmZ, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM



