Fallegur dagur, við Kleifarvatn á Reykjanesi, sem er 8 km2 að stærð og 97 metra djúpt, sjöunda dýpsta vatns landsins, og númer tuttugu að stærð. Það sem gerir Kleifarvatn einstakt, er nálægðin, kyrrðin við höfuðborgarsvæðið, þar sem tæplega átta af hverjum tíu íbúum lýðveldisins halda heimili. Undir Kleifarvatni eru stór öfl, vatnið hefur minnkað um 20% síðan um aldamót, en undir niðri eru miklir kraftar, enda er vatnið í mikilli nálægð við eldsumbrotin vestar á Reykjanesskaganum. Icelandic Times / Land & Saga var ekki eitt á ferð við vatnið. Mikil umferð, í flug hálku var við vatnið. Allir óku til fyrirmyndar, nær allir ferðamenn, nær og fjær. Enda einstaklega góður dagur við Kleifarvatn, sem er í aðeins í 45 mín fjarlægð frá Reykjavík.










Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Kleifarvatn : 04/03/2026 :GFX 100 II, GFX 100RF – 4.0/35mm, 1.7/55mm



