Að veiða myndir

Hvert fer maður að veiða myndir, nú þegar sólin er farin að láta sjá sig. Auðvitað niður á höfn. Það var kalt en fallegt á höfuðborgarsvæðinu í dag þegar Icelandic Times / Land & Saga fór niður á höfn, til að fanga stemminguna, birtuna sem birtist aftur í mínus 7 gráðum á Celsíus. Það er bjart framundan, allavega til 21. júní. Því get ég lofað.

Myndataka á Þúfunni í Reykjavíkurhöfn, Hallgrímskirkja, til vinstri
Horft í norður frá Hafnarfjarðarhöfn í miðbæ Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarhöfn
Horft yfir Hveleyrarlón að Hvaleyrarholti í Hafnarfirði
Glittir í heimili Forseta Íslands á Bessastöðum frá Sjálandi í Arnarnesvogi í Garðabæ
Gengið á Þúfunni í Reykjavíkurhöfn, Harpa og Hallgrímskirkja til vinstri
Línur í Kópavogshöfn á Kársnesi
Kópavogshöfn

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Höfuðborgarsvæðið : 06/01/2026 – GFX 100 II – GF 1.7/55mm