Birtan bak við fjöllin

Fjallabak, svæði í hálendinu norðan við Heklu og Mýrdalsjökul, hefur verið friðland í tæp fimmtíu ár. Innan friðlandsins eru meðal annars Landmannalaugar, Hrafntinnusker, Torfajökull og Rauðfossafjöll, allt svæði sem eru einstök, og sérstök. Svæðið liggur hátt, frá tæplega 500 metra hæð og yfir þúsund metrana, með ótal litbrigðum, hraunum, jökulvötnum, og fallegum tindum. Hálendið í hnotskurn.

Það eru margar gönguleiðar um svæðið, þekktast er auðvitað Laugavegurinn, 55 km gönguleið milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Það má segja að svæðið sé ekki opið fyrir venjulega ferðamenn nema í þrjá mánuði, frá miðjum júní fram í miðjan september. Þá er bara að skipuleggja sig vel, og finna sér tíma, góðan tíma til að upplifa Ísland eins og það er best. Hrátt, kalt, en umfram allt fallegt. 

Langasáta, á Dómadalsleið
Hungurfit
Norðurnámur við Tugná í þoku
Í Jökulgili
Litir við Hrafntinnusker
Undir Halldórsfelli
Kýlingavatn
Litla Grænafjall, sumarnótt
Göngufólk á Laugaveginum, rétt sunnan við Álftavatn

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Fjallabak : 28/01/2026 – A7C R – A7R IV- RX1R II / FE 1.4/24mm GM, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM