Brynhildur Þorgeirsdóttir

SAMKOMA nefnist sýning Brynhildar Þorgeirsdóttur myndhöggvara sem nú stendur yfir í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41 í Reykjavík. Sunnudaginn 18 oktober kl 15, mun Brynhildur spjalla um listaverkin og vinnuferlið og eru allir velkomnir.

Í Ásmundarsal eru kynntir til sögunnar nýjir meðlimir í skúlptúrfjölskyldu Brynhildar sem hafa verið að þróast síðan 1982 og á svölum safnsins sprettur upp smágerður útilistaverkagarður með rótarskotum í japanskri garðamenningu.

Brynhildur Þorgeirsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Gerrit Rietveld Academie í Hollandi og California Collage of Arts and Crafts, auk sérnáms í gleri við Orrefors í Svíþjóð og Pilchuck Glass School í Bandaríkjunum.
brynhildur icelandictimesVerk Brynhildar er að finna í öllum helstu söfnum landsins auk safna í ýmsum löndum. Hún hefur hlotið styrki og viðurkenningar fyrir verk sín og meðal annars fengið tvisvar úthlutun úr The Pollock- Krasner Foundation.
brynhildur iceland icelandic timesAf verkum í almenningsrýmum má nefna “Landslagsmynd” í Garðabæ, “Klettur” sem stendur við Leirvoginn í Reykjavík, “Pendúll hússins” í MK. Árið 2013 var afhjúpað umfangsmikil Landslagsinnsetning í Alingsås í Svíþjóð og verður það verkefni sérstaklega kynnt á sýningunni.
Þetta er 16 einkasýning Brynhildar hér á landi.
brynhildur reykjavik icelandic timesSýningin stendur til 25. október og er opin alla daga frá kl. 13:00 – 17:00, nema mánudag.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ASÍ.  www.listasafnasi.is
og hjá Brynhildi Þorgeirsdóttur í síma: 895 9897.
[email protected]
www.brynhildur.com

Listasafn ASÍ
Freyjugötu 41 101 Reykjavík
s.5115353, 6929165
[email protected]
www.listasafnasi.is