Við mynni Hafnarfjarðar, við ströndina við Bala, neðan við Hrafnistu standa furðuverur. Það er útvegsbóndinn eða listamaðurinn Jón Guðmundsson sem hefur verið að hreinsa fjöruna, og notað aðskotahluti úr fjörunni til að skapað þetta huldufólk. Auðvelt er að komast í námunda við þessa furðufugla sem standa á einstaklega fallegum stað í Hafnarfjarðarhrauni, rétt vestan við bæjarmörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Garðabær : 21/02/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm



