Gilbert & George: The Great Exhibition

Sýningaropnun – Gilbert & George: The Great Exhibition
Fimmtudag 6. ágúst kl. 19.00 í Hafnarhúsi
Sýningin Gilbert & George: The Great Exhibition verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, fimmtudaginn 6. ágúst kl. 19.00. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og Hinsegin dögum. Gilbert & George heilsa gestum af skjá frá London, sendiherra Bretlands á Íslandi, Michael Nevin, ávarpar opnunargesti og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýninguna formlega. 

Samhliða sýningunni er gefin út yfirlitsskrá yfir feril listmannanna með ítarlegu viðtali sýningarstjóranna Daniels Birnbaum og Hans Ulrich Obrist við Gilbert & George. 

Saman eru breska listamannatvíeykið Gilbert & George eitt skapandi afl. Frá árinu 1968, í meira en fimm áratugi, hafa þeir unnið einstök verk þar sem daglegt líf og myndlist sameinast í einu mengi. Þeir hafa haft mótandi áhrif á myndlist samtímans og eru þekktir fyrir að ryðja braut gjörningalistar og nálgast einkalíf sitt sem listaverk. Þeir hafa ögrað ríkjandi borgaralegum hugmyndum um smekk og velsæmi og ekki síst stuðlað að breyttum viðhorfum til samkynhneygðra og annarra minnihlutahópa. Nálgun þeirra hefur alltaf verið andstæð hvers kyns elítisma heldur skapað list fyrir alla. Sýningin í Hafnarhúsinu veitir yfirgripsmikla sýn yfir feril Gilbert og George. 

Sýningin Gilbert & George: The Great Exhibiton í Hafnarhúsinu er sérstaklega unnin fyrir Listasafn Reykjavíkur í góðu samstarfi við Luma safnið í Arles í Frakklandi og Moderna Museet í Stokkhólmi í Svíþjóð. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og henni stýra heimskunnir sýningastjórar, þeir Daniel Birnbaum, stjórnandi Acute Art og fyrrum safnstjóri Moderna Museet í Stokkhólmi í Svíþjóð, og Hans Ulrich Obrist, listrænn stjórnandi Serpentine Galleries í London í Bretlandi. 

Yfirlitsskráin sem gefin er út á íslensku samhliða sýningunni hefur að geyma náið samtal sýningarstjóranna við listamennina og myndir frá hálfrar aldar ferli tvíeykisins. Þar má sjá myndir af fyrstu verkum þeirra, þegar rúðunetsformið er áberandi og þeir voru hvað þekktasti fyrir. Snemma varð myndmálið flóknara, innblásið af symbólisma og allegóríu til að kanna þemu erótíkur, trúar og stjórnmála. Eins þótt list þeirra víki sér aldrei undan ofbeldi, dauða, fátækt og sársauka þess að standa utan samfélags er hún alltaf gáskafull og hlaðin óræðni. Í miðju grimmustu misklíða samfélagsins finna Gilbert & George fegurð og ástæður til að fagna lífinu. 

Sýningin yfirtekur Hafnarhúsið, að undanskildum tveimur sölum, og stendur til 3. janúar 2021.