Guðshús Reykjavíkur

Efst á Skólavörðuholtinu í miðbæ Reykjavíkur, stendur Hallgrímskirkja, helsta kennileiti höfuðborgarinnar. Kirkjan sem var í byggingu í 41 ár, frá árinu 1945 þangað til hún er vígð, tilbúin árið 1986. Kirkjan er kennd við séra Hallgrím Pétursson (1614-1674) okkar mesta sálmaskáld, og teiknuð, eins og margar helstu byggingar landsins af Guðjóni Samúelssyni (1887-1950), en hann teiknaði meðal annars Háskóla Íslands, Þjóðleikhúsið og Sundhöllina. Kirkjan sem er tæplega 75 metra há, var lengi hæsta bygging landsins, og í dag er útsýnispallurinn í toppi turnsins, einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins. Hallgrímskirkja er stærsta guðshús landsins, með orgel með 5275 pípum, en þetta ótrúlega hljóðfæri sem vegur 25 þúsund kíló, kemur í kirkjuna árið 1992. Icelandic Times / Land & Saga fór hringinn í kringum Hallgrímskirkju, og upp í turn, til að horfa yfir höfuðborgina, en úr turninum er besta útsýnið yfir höfuðborgina, og yfir sundin blá. 

Baksvipur Hallgrímskirkju
Myndataka við kirkjuna
Ferðamenn við Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja frá Skólavörðustíg
Horft í austur úr turninum, yfir Hlíðarnar að Bláfjöllum
Miðbærinn blasir við úr turni Hallgrímskirkju. Skólavörðustígur fyrir miðri mynd
Skírnarfontur og predikunarstóllinn í Hallgrímskirkju
Horft frá altarinu að orgelinu

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 21/02/2026 : GFX 100RF – 4.0/35mm