Það mætti segja að Skagafirðirnir væru tveir; fjörðurinn sjálfur, og síðan héraðið umhverfis og inn af firðinum heitir líka Skagafjörður. Hér horfum við fjarðarins sem gefur héraðinu nafnið, en hann liggur á norðvesturlandi, milli Skaga og Tröllaskaga. Fjörðurinn er 40 km langur, og 15 km breiður. Í firðinum eru þrjár og hálf eyja, Málmey, Drangey og Lundey, og síðan Þórðarhöfði, höfði sem er næstum því eyja, því örmjó rif, festa hann við fastalandið. Þrír bæir eru við fjörðinn, Sauðárkrókur og Hofsós, síðan Varmahlíð, þjónustubær við Hringveg 1. Blómleg landbúnaðarbyggð er í héraðinu, enda veðursæld í Skagafirði. Frá Reykjavík eru tæpir fjögra tíma akstur, norður í Skagafjörð, að upplifa einstakan fjörð, og byggðarlag, þar sem biskupssetrið á Hólum í Hjaltadal, það forna höfuðból, er punkturinn yfir i-ið.




Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson




Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Skagafjörður : 17/11/2025 – A7C R, A7RIV, RX1R II : FE 1.8/135, FE 2.8/100mm GM, FE 2.8/90mm G, 2.0/35mm Z



