Halló Hafnarfjörður

Það munaði mjóu, að Hafnarfjörður yrði höfuðstaður Íslands. Enda er ein besta náttúrulega höfn landsins í samnefndum firði. Frá 15. öld varð Hafnarfjörður stærsta verslunarhöfn Íslands, og mikil útgerð hefur verið stunduð þarna frá landnámi, en bróðursonur Ingólfs Arnarssonar, fyrsta landnámsmannsins, sem settist að í Reykjavík, Ásbjörn Özurarson nam Hafnarfjörð. Bærinn fékk kaupstaðaréttindi árið 1908, en þá voru íbúar bæjarins 1.500. Í dag er Hafnarfjörður þriðji stærsti bær landsins með um 33 þúsund íbúa. Icelandic Times / Land & Saga kíkti við í þennan fallega bæ, ekki niður í miðbæ, heldur í útjaðra bæjarins, en stutt er í einstaklega falleg útivistarsvæði, í og við bæinn.

Við Hvaleyrarvatn
Mikil skógrækt er við Hvaleyrarvatn og nærliggjandi svæði
Selhöfði við Hvaleyrarvatn í bakgrunni
Þorskhausar þurrkaðir í Óbrinnishólahrauni, við veg 42, Krýsuvíkurveg, rétt sunnan við Hafnarfjörð
Vegur 42, að Seltúni, Krýsuvík og að Suðurstrandarvegi
Straumur við Straumsvík, þar var menningarmiðstöð um tíma
Íbúðarhús og náttúra, Setbergsholti
Litríkt háhitasvæði í Seltúni í landi Hafnarfjarðar á Reykjanesi

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Hafnarfjörður : 12/01/2026 – GFX 100 II – GF 4.0/23mm