Stuttir dagar. Það krefst undirbúnings að ferðast um Ísland um hávetur. Veðurfar og vegleg er síbreytilegt. Það sem tekur þrjá tíma að keyra að sumri, austur á Kirkjubæjarklaustur, eða norður á Blönduós, það tekur helmingi lengri tíma um hávetur. Því þarf maður að hugsa… hugsa fram í tímann, hvar vil ég vera, hvar er besta veðrið, hve langan tíma tekur að komast þangað og njóta þeirra fáu tíma sem er bjart. Síðan er það klæðnaðurinn, góðir sólar, því maður þarf að vera fótviss í hálku og snjó, hlý föt og góður ferðafélagi. Hvort sem það er myndavél eða maki. Síðan en síst er það heimasíður Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands, sem veita góðar upplýsingar í rauntíma um veður og færð. Síðan er það bara að drífa sig; og upplifa Ísland eins og það er best… eða næst best um hávetur.






Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Ísland: 27/11/2025 – A7C R : FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/24mm GM



