Heimurinn án okkar

Sýningaropnun Heimurinn án okkar
Föstudagur 28. ágúst kl. 20

 
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er sýningin Heimurinn án okkar.

Á sýningunni eru verk eftir myndlistarmennina Björgu Þorsteinsdóttur, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Finn Jónsson, Gerði Helgadóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ragnar Má Nikulásson, Steinu og Vilhjálm Þorberg Bergsson sem öll eiga sér ólíkan bakgrunn í íslensku myndlistarlífi.

Festing-Gerdur HelgadottirÁ sýningunni er teflt saman verkum íslenskra listamanna af ólíkum kynslóðum sem vinna með hugmyndir um alheiminn í verkunum á sýningunni. Í Bjorg thorsteinsdottirþeim er varpað ljósi á ákveðna þætti alheimsins hvort sem um er að ræða nærumhverfi eða víðara samhengi, micro eða macro.

Á sýningartímabilinu verður boðið upp á leiðsagnir með þátttöku listamannanna, þá fyrstu sunnudaginn 30. ágúst kl. 15. Þá mun Steina ræða við gesti um list sína og fjölbreyttan feril en hún er frumkvöðull á sviði raf- og videolistar á heimsvísu. Jafnframt verður efnt til málþings fimmtudaginn 24. september kl. 20.

Sýningarstjórar eru Aðalheiður Valgeirsdóttir myndlistamaður og listfræðingur og Aldís Arnardóttir listfræðingur en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2015.
martamaria1

Heimurinn án okkar er fimmta sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013 og sýning Helgu Þórsdóttur, Rás, haustið 2014. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2016.

 
Myndir – Kreditlisti

Björg Þorsteinsdóttir
Óskasteinn I, 1986
Gerður Helgadóttir
Festing, 1956
Marta María Jónsdóttir
Án titils
Olía á striga, 2015
Stærð 150x200cm

Frekari upplýsingar um má nálgast á heimasíðu Hafnarborgar: www.hafnarborg.is

Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Friðjónsdóttir, upplýsingafulltrúi Hafnarborgar, s. 694-3457
Aðalheiður Valgeirsdóttir, s. 698-1184 og
Aldís Arnardóttir, s. 862-5340