Margir ferðamenn koma hingað heim, til að njóta náttúrunnar, með myndavél í hönd. Heimamenn líka. Því maður þarf ekki að fara langt frá höfuðborginni til að finna einstaka náttúru, kyrrð og fegurð.
Icelandic Times / Land & Saga tók hring um höfuðborgina, því fallegur himinninn mætti á svæðið, speglaðist í vötnum, eða sjónum, sem umlykur Reykjavík.
Maður þarf ekki mikið, eina myndavél og eina linsu til að upplifa þau blæbrygði sem birtan og náttúran gefur okkur. Allar þessar myndir eru teknar á 35 mm linsu, það eina sem ég breytti var formatið. Sumar myndir pössuðu best í 1.1, aðrar i Panórama, allt gert í vélinni. Því galdurinn við góða mynd mynd er ekki eftirvinnslan, heldur hvað þú sérð, og kemur því síðan áfram, eins og það var, til þeirra sem höfðu ekki möguleika að vera með okkur á staðnum.
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 30/01/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm









