Hörður Ágústsson (1922-2005) var ekki bara fjölhæfur myndlistarmaður, hönnuður og fræðimaður, sem nam bæði verkfræði, auglýsingateiknun og myndlist, hér heima og í Kaupmannahöfn, London og París. Hann mótaði heilan her af myndlistarmönnum, sem kennari og skólastjóri Myndlista- og handíðaskólans. Hann mótaði líka menningarumræðuna, með Birtingi, menningartímariti sem hann stofnaði árið 1955, með rithöfundunum Einari Braga, Jóni Óskari og Thor Vilhjálmssyni. Hann var ekki bara leiðandi rödd módernismas, hann mótaði á margan hátt ekki bara umræðuna, heldur gerði nýja hluti og nýstárleg verk. Vann líka með mönnum eins og Diter Roth, þegar honum skolaði hingað til Íslands um miðja síðustu öld. Hörður var meira en bara listamaður, hann hlaut tvisvar Íslensku bókmenntaverðlaunin. Í Gerðarsafni í Kópavogi er sýningin Hörður, þar sem við hittum þennan merka listamann, í sýningarstjórn, Brynju Sveinsdóttur, og Arnars Freys Guðmundssonar, Birnu Geirfinnsdóttur hjá Studio Studio









Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Kópavogur : 12/02/2026 : GFX 100 RF – 4.0/35mm
Myndatextar :
1065 Allar aðrar myndir
Hörður, á Gerðarsafni



