Horft til baka III

Þegar maður lítur til baka á þær sjö hundruð ljósmyndir sem birtar voru í maí og júní hjá okkur á Icelandic Times / Land & Sögu, er erfitt að velja þær bestu. En hér eru átta myndir sem okkur þykir vænt um, ná tíðarandanum. Hvort sem það er hversdagslegt augnablik, eða bara augnablik sem var, og kemur ekki aftur. Síðan er maður svo fljótur að gleyma; þegar ég fletti í gegnum myndir sem ég tók þessa mánuði, þá var einstaklega gott, hlýtt og bjart veður í maí og júní í fyrra.

Í Bankastræti
Tröll við Tjörnina, á 17.júní
Frá sýningu Safnasafnsins á Nýló
Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður
Ferðamenn á Sólheimajökli
Þjóðvegurinn, fjallvegurinn við Krakatina, rétt norðan við Heklu
Álftafjörður, vestur á fjörðum, í fallegri birtu
Miðnætti á Langanesi

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Ísland : 02/01/2026 – A7CR, A7R IV – FE 1.4/24mm, FE 1.2/50mm, FE 2.8/100mm