Það eru rétt um þrjúhundruð kílómetrar frá Reykjavík, eftir Hringvegi 1, í austur í Austur-Skaftafellssýslu, eitt fallegasta sveitarfélag landsins. Það heitir eftir sameiningu allra hreppa í sýslunni árið 1998 Sveitarfélagið Hornafjörður. Frá sýslumörkum í vestri, austur í Suður-Múlasýslu, eru tvöhundruð kílómetrar af einstaklega fallegu og fjölbreyttu landslagi, í faðmi Vatnajökuls. Þarna er stærsta og hæsta fjall landsins Öræfajökull, sem blasir við, nánast alla leiðina. Við rætur jökulsins eru staðir eins og Skaftafell, mikill ferðamannastaður, í Vatnajökulsþjóðgarði, og Jökulsárlón, einstakur staður, sem dregur hundruði, ef ekki þúsundir ferðamanna til sín á degi hverjum, líka í þjóðgarðinum. Austar er Vestra-Horn, eitt mest myndaða fjall landsins, og Lónsöræfi, einstök hálendisperla í austurjaðri Vatnajökuls. Ekki má gleyma Ingólfshöfða, fuglaparadísinni, sunnan við Fagurhólsmýri, eða ótal skiðjökla sem falla úr Vatnajökli, niður á láglendið, sem er mjó ræma milli jökulsins og Atlantshafsins. Í sveitarfélaginu búa í dag 2700 manns, þar af 1700 í eina bænum í sýslunni, Höfn í Hornafirði, útgerðar og ferðaþjónustubær, sem er á einstaklega fallegu bæjarstæði, nesi út í Hornafjörð, með útsýni vestur á Öræfajökul, og austur á Vestra-Horn. Getur ekki verið fallegra… nema ef til vill í Lóni, austasta hluta sýslunnar, milli Eystra- og Vestra-Horns.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík 29/09/2025 – A7C R, A7R III, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z, FE 1.4/24mm GM5 1



