Hafnir er einstakt þorp, á sunnan og vestanverðu Reykjanesi, í aðeins 12 km / 7 mi fjarlægð frá Keflavík. Í dag búa þar hundrað og sjö íbúar, samkvæmt Hagstofu Íslands, mun færri en bjuggu þarna árið 1900, þegar mikil smábátaútgerð var frá Höfnum. Þegar vélbátarnir komu, þurftu þeir alvöru höfn, það var ekki aðstaða vegna grynninga að búa til alvöru höfn í Höfnum. Það var Herjólfur Bárðarson, frændi Ingólfs Arnarssonar fyrsta landnámsmannsins, sem nam land í Höfnum. Bjarni Bárðarson barnabarn Herjólfs var mikil víkingur, og fór alla leið vestur til meginlands Ameríku á þess að stíga í land árið 987, sem varð til þess að landi hans Leifur Eiríksson, hélt til að leita landa í vestri, þrettán árum síðar. Hafnir sem var landmesta, en fámennasta sveitarfélagið á Reykjanesi, sameinaðist Keflavík / Njarðvík, þegar Reykjanesbær, fjórði fjölmennasti bær landsins verður til árið 1994.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Hafnir 18/09/2025 – RX1R II, A7C R : 2.0/35mm Z, FE 1.8/135mm GM



