Í Ásmundarsal í 101 Reykjavík, sýna nú 101 listamenn á Jólasýningu safnsins, brjálað að gera. Þetta er í áttunda sinn sem sýning er haldin, og hefur hún fest sig í sessi, sem einn af hápunktum í jóladagatali íslenskra listunnenda. Ásmundarsalur var byggður árið 1933, af Ásmundi Sveinssyni, einum af okkar ástsælustu myndhöggvurum, sem vinnustofa og heimili hans og fyrri eiginkonu, Gunnfríðar Jónsdóttur. Ásmundarsalur hefur spilað stórt hlutverk í lista- og menningarsögu Íslands, og gerir enn, nú níutíu og tveimur árum seinna, þarna efst uppi á Skólavörðuholtinu í 101 Reykjavík.







Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 01/12/2025 – GFX 100 II : GF 4.0/23mm, GF 1.7/55mm



