Í Molduhrauni

Úr Búrfelli rétt sunnan Hafnarfjarðar, rann mikið hraun 6000 árum fyrir Krist, hraun sem rann í sjó fram bæði í Hafnarfirði og í Garðabæ. Hraun sem hefur mörg nöfn, eitt þeirra er Molduhraun, nú hverfi sem er lifandi athafnarsvæði, Garðabæjarmegin við landamærin við Hafnarfjörð. Þarna eru alþjóðleg íslensk stórfyrirtæki með höfuðstöðvar eins og Marel, Controlant, og 66°Norður. Líka ríkisfyrirtæki, en Vegagerðin er með höfuðstöðvar sínar í Molduhrauni, sem liggur í þjóðleið, vestan við Reykjanesbraut, hinu megin við brautina eru Toyota, Costco og IKEA með sínar risastóru verslanir. Svæðið er einstakt á Íslandi, við kíktum við, enda athafnasvæðið einstakt, í hrauni sem rann, og mun renna aftur, löngu eftir okkar daga. Vonandi. 

Athafasvæðið í Molduhrauni er byggt á síðustu árum í hrauni sem rann fyrir 8000 árum
Marel er í Molduhrauni með sína starfsemi
Þykkvabæjar, matvælafyrirtækið er með sína starfsemi í Molduhrauni
66°Norður, eitt fremsta fyrirtæki landsins í framleiðslu og sölu á útvistar- og vinnufatnað er staðsett í Molduhrauni
Góa, einn stærsti salgætisframleiðandi landsins er með sínar höfuðstöðvar og verksmiðju í Molduhrauni 
Höfuðstöðvar Vegagerðarinnar
Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins er auðvitað með verslun í Molduhrauni 

Texti og ljósmyndir: Páll Stefánsson

Garðabær 17/09/2025 – RX1R II : 2.0/35mm Z