Ís – land, Flóka

Næst fyrstur norrænna manna til að hafa vetursetu hér á Íslandi var Norðmaðurinn Flóki, sem nam land í Vatnsfirði á Barðaströnd. Veiði var svo gjöful í í Vatns- og Breiðafirði að hann, og hans fólk gleymdu alveg að heyja um sumarið fyrir bústofninn sem þau flutti með sér, svo allar skepnurnar drápust. Eftir það hafði hann litlar mætur á landinu, sem hann kallaði Ísland, og sigldi brott með mönnum sínum, aftur heim til Noregs. Fyrstur landnema var Svíinn Garðar Svavarsson, sem bjó eitt ár við Skjálfanda, í Húsavík, og þegar hann fór, nefndi hann landið auðvitað Garðarshólmi, eftir sér, og í stíl við annan hólma, núverandi höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólm. En eftir Flóka, kom síðan annar Norðmaður, Ingólfur Arnarsson árið 872, og settist hér að, og hóf landnám á eyju sem Flóki hafði nefnt, Ísland, enda er tíundi hluti landsins í dag hulið jöklum. Jöklarnir geyma vel yfir tuttugufalda meðalúrkoma landsins, og setja sterkan svip á allt landslagið. Hér eru myndir af jöklum og ís sem gefa landinu réttmætt nafn. Ísland.

Svínafellsjökull
Hofsjökull
Grænafellsjökull og Falljökull
Jökulsárlón
Langjökull
Borgarfirði Eystri

Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Ísland: 28/11/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z