Það er auðvitað ekki hægt að kalla einn stað fallegri en annan. En samt… Langisjór sem lúrir suðvestur undir Vatnajökli, er einn af þessum stöðum þar sem náttúran og umhverfið er eins og það er best, í örfáar vikur á sumrin. Laglegur og fallegur á góðum degi.
Langisjór, þetta tuttugu kílómetra langa og tveggja kílómetra breiða vatn, sem er 27 km² stórt er einstakt. Enda svo afskekkt að það fannst ekki og fékk ekki nafn fyrr en árið 1889, eittþúsund og fimmtán árum eftir að land byggðist. Vatnið er í tæplega 700 metra hæð, með stefnu eftir flekaskilum í suðvestur, norðaustur undir Tungnaárjökli í Vatnajökli. Einstakt svæði sem er einungis hægt að heimsækja í rúma tvo mánuði, frá júlí byrjun fram í miðjan september. Síðan 2011 er Langisjór og umhverfi hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.








Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Langisjór: 14/01/2026 – RX1R II, A7R IV + Linhof – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM +65mm



