Lax- og silungsveiði, er verðmæt fyrir þjóðarbúið, enda er Ísland eitt besta laxveiðiland í heimi. Veiðitímabilið er stutt, eða um 90 dagar að meðaltali. Fyrir tíu árum gerði Hagfræðistofnun Háskóla Íslands úttekt á stangveiði á Íslandi. Niðurstaðan var að stangveiðin leggi mun meira í þjóðarbúið en áður var talið eða 9.1 milljarð á ári, árið 2016. Mætti ætla að sú tala hafi næstum tvöfaldast, síðan. Á síðasta ári (2024) var heildarfjöldi laxa veiddir á stöng á Íslandi 43.517 laxar, samkvæmt Hafrannsóknastofnun. Af veiddum löxum var tveimur þriðju, eða 67,5% sleppt, og landaðir voru 32,5%. Alls veiddust 3.957 laxar í net. Í stangveiðinni veiddust 44.557 urriðar, og 27.778 bleikjur, og í net á landinu öllu 7.863 urriðar og 19.907 bleikjur. Nú þegar veiðitímabilinu er að ljúka, hafa flestir laxar veiðst í Ytri-Rangá, eða 4186 stykki, næst kemur Eystri-Rangá með 2196 laxa. Í þriðja sæti er Þverá/Kjarrá með 1729, meðan Miðfjarðará er með 1082 og Selá með 1071 lax. Alls er veitt í um 80 ám, og ótal vötnum, hringinn í kringum Ísland. Icelandic Times / Land & Saga fór í Eldvatn í Meðallandi, sem er mjög gott sjóbirtingssvæði, auk þess sem veiðist þar bæði lax og bleikja, til að veiða myndir, af veiðimönnum veiða fisk.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Vestur-Skaftafellssýsla 12/09/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z



