Leiðsögn listamanna

Leiðsögn listamanna

Fimmtudaginn 24. desember kl. 18:00

Kolbeinn Hugi, Cryptopia One: A Beginning Is A Very Delicate Time

Bjarki Bragason, ÞRJÚÞÚSUND OG NÍU ÁR

Velkomin á leiðsögn listamannanna Kolbeins Huga og Bjarka Bragasonar um sýningar þeirra í Nýlistasafninu. Fimmtudaginn 24. janúar kl. 18. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Báðar sýningarnar beina sjónum okkar að náttúrunni og nærumhverfinu og rannsaka samband mannsins við umhverfi sitt, fólk og hluti í fortíð og nútíð. Listamennirnir beita þó afar ólíkum aðferðum og nálgast viðfangsefnið út frá ólíkum sjónarhornum og aðferðum. Þannig hvíslast verk beggja listamanna á um mismunandi tíma og leiðir til að tengja við og reyna að skilja þann heim sem umlykur okkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

 

OpnunartímarNýlistasafnið, Grandagarður 20 (Marshallhúsið), 101 Reykjavík

Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 12 – 18

fimmtudaga frá kl. 12 – 21

Nýlistasafnið, Breiðholti

Opið eftir samkomulagi

Aðgangur er ókeypis

www.nylo.is