Magnús Sigurðarson

Leiðsögn: Magnús Sigurðarson
Fimmtudag 8. júní kl. 20.00 í Hafnarhúsi

Leiðsögn með Magnúsi Sigurðarsyni, myndlistarmanni og samstarfsmanni Ragnars Kjartanssonar, um sýninguna Guð, hvað mér líður illa í Hafnarhúsi.

Magnús er meðhöfndur Ragnars að innsetningunni Trúnaði, elsta verkinu á sýningunni. Sýningin er fyrsta safnsýning Ragnars á heimavelli eftir sigurför á erlendri grundu. Sýningin endurspeglar óð Ragnars til listarinnar í allri sinni dýrð, til tónlistar, leikhúss, kvikmynda, bókmennta og, að sjálfsögðu, myndlistar. Hylling listamannsins birtist í völdum verkum, frá árinu 2004 til dagsins í dag; lifandi gjörningum, stórum myndbandsinnsetningum, ljósmyndum, höggmyndum, málverkum og teikningum.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.