Mesta hraunrennsli mannkynssögunnar

Eldhraun í Vestur-Skaftafellssýslu er stærsta hraun sem hefur myndast í sögu mannkyns, í einu gosi. Skaftáreldar var eldgos sem hófst 8. júní árið 1783, og lauk í febrúar 1784. Flatarmál Eldhrauns er 580 km². Hörmungarnar sem fylgdu á eftir, Móðuharðindin, stóðu yfir næsta árið, og kostuðu 20% þjóðarinnar, meira en 10 þúsund manns lífið.
Í dag er Eldhraun og umhverfi ein af náttúruperlum í íslensku landslagi, einstaklega fallegt. Icelandic Times / Land & Saga sýnir ykkur brota brot af þeirri fegurð, sem hraunið og svæðið umhverfis bjóða uppá. Í mosavöxnu hrauninu gleymir maður fljótt þessum hörmungum, sem voru þarna á svæðinu fyrir svo stuttu síðan, tæplega 250 árum, sama ár og Bandaríkin urðu sjálfstæð þjóð, og Rússar hertaka Krímskagann af Óttómönum, og byrja sitt landnám í Alaska. 

Gervigígar í Álftaveri, í lit
Horft eftir endalausu Eldhrauni í Meðallandi
Eldhraun við Skaftá
Kvöldsól við Orustuhól
Laki, sem eldgosið er kennt við, en fjallið er í miðri tuttugu km langri gígaröðinni
Úfið Eldhraunið, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, eina þorpinu á Laka / Eldhraunssvæðinu
Lækur við Laka
Horft yfir Eldhraun, rétt sunnan við Laka

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Vestur Skaftafellssýsla : 23/02/2026 : RX1R II, A7R III, A7R IV – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 1.4/85mm GM, FE 1.8/135mm GM