Hugmyndir fæðast. Þær koma á færibandi, en það eru fáir sem klára hugmyndirnar, hvað þá gera þær vel. Kristján Maack ljósmyndari, gerir það einstaklega vel á sýningu sinni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Sofandi risar. Markmið Kristjáns með sýningunni er að sýna veröld á hverfanda hveli, veita okkur innsýn í veröld íshalla þar sem hinir ,,sofandi risar” myndast og hverfa jafnharðan. Því skriðjöklarnir eru útverðir jökulsins, þar sem þeir rísa upp eftir þúsund ára svefn, og síðan hverfa.
Kristján, sem hefur starfað sem ljósmyndari í yfir þrjátíu ár, og tekst hér á við eitt stærsta verkefni samtímans, loftslagsbreytingarnar, með myndavél sem vopn. ,,Loftslagsbreytingarnar,eru okkar stærsta ógn, jafnvel þegar við sofum, því þær taka sér enga hvíld.“







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 22/01/2026 – GFX 100 II – GF 1.7/55mm



