Níu mínútur í ellefu

Sólin, já sólin kemur upp rétt fyrir klukkan ellefu, nú í byrjun desember í höfuðborginni. Hún sest líka snemma, rétt um hálf fjögur. En þegar hennar nýtur við, þá er ákaflega fallegt. Eins og við sáum í dag þriðja desember, logn og hitinn bærilegur, rétt fyrir ofan við frostmark. Icelandic Times / Land & Saga var auðvitað á ferðinni, og hér eru stemningar, myndir frá Reykjavík, þegar sólin kyssti landið, áður en hún tók sér góða pásu seinnipartinn, og alveg að hádegi á morgun.

Grafavogur, Esjan í bakgrunni
Sundahöfn fjær, Bryggjuhverfið nær í skugga
Tjarnir við Sævarhöfða
Smábátahöfnin við árósa Elliðaár, Vogarnir í bakgrunni
Horft út í Viðey og á Esjuna
Leifur heppni og Safn Einars Jónssonar efst á Skólavörðuholtinu
Horft niður Frakkastíg


Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 03/12/2025 – GFX 100 II : GF 1.7/55mm