Norðurljós yfir Reykjavík

Það er erfitt að fanga norðurljós. Þegar þau koma, er auðvitað hægt að fanga þau með með síma, sem allir hafa á sér…  fengið mynd á skjáinn sem lítur vel út, og allir glaðir. En ef þú ætlar að stækka síma mynd, nota hana, þá er hún, því miður ekki prenthæf. Þú gætir verið í Finnlandi, Alaska eða jafnvel á Grænland, Því þessi einstaki hánorræni  ljósadans, er alveg eins hér og í Svíþjóð, ef engin kennileiti eru á myndinni. 

Hvað þarf maður… til að ná góðri mynd af norðurljósum. Góðan þrífót, góða myndavél, og þolinmæði. Líka, ekki síður mikilvægt, góða skó og hlý föt, því biðin getur verið löng, eftir myndinni. Og þessi mynd, sem Icelandic Times / Land & Saga náði í kvöld… tók bar tæpa þrjá tíma, á sama stað, með sömu stillingu á myndavélinni. Það var bara að bíða, bíða eftir að norðurljósin brostu hringinn. 

Norðurljós við Reykjavíkurtjörn. Ráðhús Reykjavíkur á miðri mynd

Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 11/02/2026 – GFX 100 RF – 4.0/35mm