Birtan í nóvember, til að taka myndir af íslensku landslagi er einstök. Hún er svo hörð, miskunnarlaus, allt öðruvísi en um hásumar. Dagarnir eru líka mun styttri, það munar miklu hvort maður hefur, sex, sjö tíma af birtu, eins og nú í nóvember eða fjórtán eða tuttugu og fjóra tíma að glíma við landslagið. Hér koma nokkur sýnishorn af íslensku landslagi, eins og nóvember birtan birtist mér. Margar teknar í svart hvítu, dregur fram hart ljósið, margar í formatinu 1:1, format sem sænska Hasselblad bjó til upp úr seinna stríði, format sem er erfitt en skemmtilegt að glíma við í landslagi, þar sem ljós og skuggar leika stórt hlutverk.






Ljósmyndir / Texti : Páll Stefánsson
Ísland: 19/11/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.8/20mm G, 2.0/35mm Z



