Nýir rekstraraðilar veitingastaðarins á Hótel Holti

Nýir rekstraraðilar veitingastaðarins á Hótel Holti

Ragnar Eiríksson verður yfirkokkur á HOLTINU.

Mikil gróska er nú í veitingahúsaflórunni í Reykjavík og er borgin orðin spennandi áfangastaður fyrir sælkera heimsins. Eigendur DILL Restaurant, KEX hostels og Hótel Holts hafa nýverið gert með sér samkomulag um veitingarekstrur á Hótel Holti um áramót. Stefnt er að opnun á nýjum veitingastað í febrúar sem mun bera nafnið HOLT og byggir á rótgrónum grunni hótelsins. Hótel Holt hefur frá upphafi verið þekkt innanlands sem utan fyrir alúð og gestrisni eigenda og starfsfólks, sem og hið einstaka safn íslenskrar myndlistar sem prýðir hótelið, ásamt því að skipa stóran sess í veitingaflóru Reykjavíkur. Hótel Holt, sem opnaði upphaflega árið 1965, hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu, en er í dag rekið af dóttur stofnendanna, Geirlaugu Þorvaldsdóttur.

Ragnar Eiríksson, núverandi yfirkokkur á DILL, verður yfirkokkur á HOLTINU og eftirlætur Kára Þorsteinssyni stjórnartaumana á DILL Restaurant, sem fékk Michelin-stjörnu í febrúar síðastliðnum. DILL Restaurant mun halda sínu striki sem veitingastaður á heimsmælikvarða og stefnir Kári að því að leiða DILL áfram veginn við Hverfisgötu 12.

Ragnar kemur til með að nýta reynslu sína frá rekstri DILL Restaurant, Henne Kirkeby Kro, The Paul, Noma og víðar til að skapa nýtt andrúmsloft á HOLTINU sem byggir þó á gömlum og klassískum grunni Hótel Holts. Ragnar og félagar leita nú að öflugu og faglegu samstarfsfólki í öll störf og taka nú þegar við umsóknum.

„Veitingastaðurinn HOLT mun leggja áherslu á frábæran mat og framúrskarandi úrval af léttvínum eins og gert hefur verið í húsinu í gegnum tíðina. Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu verkefni og stolt að fá tækifæri til þess vinna með HOLTIÐ og fylgja þeim rótgrónu hefðum sem mótast hafa á Hótel Holti um áratuga skeið“ segir Ólafur Ágústsson, talsmaður rekstraraðila.