Það hafa fáir staðir, breyst eins mikið í aldanna rás í Reykjavík og Örfirisey. Eyja sem tengd var með granda sem hægt var að ganga út á, á fjöru. Örfirisey liggur vestan við Kvosina, þar sem byggð á Íslandi hófst. Grandinn, sem er í dag byggður á landfyllingu og Örfirisey er í dag vestasti hluti Reykjavíkurhafnar, og helsta verslunarsvæði fyrir vesturborgina fyrir matvöru, auk þess að vera lifandi staður fyrir útgerð, en tvö stór útgerðarfélög eru staðsett í Örfirisey. Þarna eru líka olíubirgðir landsins geymdar, ferðamannastaðir, veitingahús og nokkur söfn. Örfirisey og Grandinn er í dag líflegt þorp í miðri höfuðborginni, með einu íbúðarhúsinu, blokk, en fágætu mannlífi þar sem ferðamenn og heimamenn hittast á eyju sem er að mestu mannanna verk. Landfyllingin gerir höfnina bæði öruggari og betri, og býr til nýtt hverfi, svæði rétt vestan við miðborgina. Icelandic Times / Land & Saga átti leið um þennan nýja og jafnframt gamla hluta höfuðborgarinnar.











Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Örfirisey : 20/01/2026 – GFX 100 II – GF 1.7/55mm



