Við sunnanverða Reykjavíkurtjörn, vestanmegin er Höggmyndagarðurinn Perlufesti. Hann var opnaður á Kvenréttindadaginn, þann 19. júní til minningar um upphafskonur í íslenskri höggmyndalist. Garðurinn sem er hluti af Listasafni Reykjavíkur, og fékk nafngiftina frá Gjörningaklúbbnum, vísar til hringlaga afstöðu verkanna, eftir sex konur sem voru frumkvöðlar í höggmyndalist hér á landi. Þær, Gunnfríði Jónsdóttur (1889–1968), Nínu Sæmundsson (1892-1962), Tove Ólafsson (1909-1992), Þorbjörgu Pálsdóttur (1919-2009), Ólöfu Pálsdóttur (1920) og Gerði Helgadóttur (1928-1975). Verkin sem um ræðir eru: Landnámskonan eftir Gunnfríði, Hafmeyjan eftir Nínu, Maður og kona eftir Tove, Piltur og stúlka eftir Þorbjörgu, Sonur eftir Ólöfu og Nafarinn eftir Gerði. Auk þess er verkið Á heimleið, eftir Gunnfríði, austan við Tjörnina, verk þar sem konan horfir, í vestur, yfir tjarnarsporðinn í Perlufestina. Ekki hluti af Pelufestinni, og þó.







Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 07/01/2026 – GFX 100 II – GF 1.7/55mm



