Reykjanesbær á flugi

Reykjanesbær (Keflavík/Njarðvík) á Reykjanesi er fjórði fjölmennasti bær landsins, með 22.911 íbúa. Hvergi á Íslandi hefur íbúum fjölgað jafn hratt og mikið og í bænum, en íbúum hefur fjölgað um 53.5% á síðustu tíu árum. Til samanburðar hefur íbúum í Reykjavík fjölgað um 16.8% á sama tíma. Hlutfall erlendra ríkisborgara er hvergi hærra í stærri sveitafélögum landsins, því 34.4% íbúa Reykjanesbæjar eru með erlent ríkisfang. Það er fyrst og fremst Keflavíkurflugvöllur, alþjóðaflugvöllurinn við bæinn sem hefur drifið áfram þessa miklu fólksfjölgun, en ferðaþjónustan hefur vaxið mjög hratt á síðustu tíu árum. En 

Reykjanesbær er meira en bara flugvöllurinn, þarna leynast gamlar perlur, fallegar kirkjur og söfn, og hafnarstemming sem minnir á gamla tíma, þegar fiskvinnsla og útgerð voru annað hryggjarstykkið í atvinnu bæjanna Keflavíkur og Njarðvíkur, sem sameinuðust í eitt sveitarfélag árið 1994, ásamt Höfnum og Ásbrú, byggð Bandaríska flotans á Keflavíkurflugvelli. Bandaríkjamenn yfirgáfu herstöðina í september árið 2006, þegar kaldastríðinu lauk, eftir að starfað þarna frá árinu 1951.  

Safnið Stekkjarkot frá 19. öld og Víkingaheimar safn um landafund Ameríku, og um heim og heimsmynd víkinga í Njarðvík
Ný byggð í Tjarnarhverfi í Njarðvík
Bygg, byggir 1.500 íbúðir í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ, ekki veitir af, þegar íbúum hefur fjölgað yfir 50% á tíu árum í Reykjanesbæ
Við Hafnargötu í Keflavík
Báturinn Baldur, kallaður gullmolinn í hvílu í naust við smábátahöfnina í Gróf
Innri – Njarðvíkurkirkja, frá árinu 1886
Smábátahöfnin í Gróf, vinsæll áfangastaður ferðamanna í Keflavík
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavíkurflugvelli. Um völlinn fóru 8.3 milljónir farþega á síðasta ári (2024) 
Nýr leikskóli í Hlíðarhverfi, byggður og hannaður af Bygg, Byggingarfélagi Gunnars og Gylfa
Hljómahöll, þar er Rokksafn Íslands til hús, enda var Keflavík höfuðstaður popptónlistar á Íslandi á Bítlatímanum

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjanesbær 11/09/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z