Algjörar skvísur – haustsýning Hafnarborgar 2025

Listráð Hafnarborgar hefur valið Algjörar skvísur sem haustsýningu ársins 2025, úr fjölda tillagna sem bárust fyrr á árinu í gegnum árlegt opið kall safnsins. Sýningarstjórar vinningstillögunnar eru þær Jasa Baka og Petra Hjartardóttir, sem munu bjóða gestum að kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist.

Algjörar skvísur hverfist um ólíkar birtingarmyndir sætleikans, guðdómlegar og goðsagnakenndar kvenlegar erkitýpur og andahyggjuna sem lítur á (móður) náttúru sem síkvika veru. Þá eru þessar hugmyndir skoðaðar út frá því hvernig þær eiga við fólk, staði og hluti, einkum nú þegar segja má að kvenlegar erkitýpur séu að koma fram úr fylgsnum sínum og umbreyta skilningi okkar á sjálfsmynd og jafnvægi.

Sýnd verða verk sem unnin eru í margvíslega miðla en markmiðið með sýningunni er að varpa ljósi á það hvernig þátttakendur túlka hinar ýmsu erkitýpur og goðsagnaverur, sem og samband okkar við náttúruna. Þannig býður Algjörar skvísur upp á áhugaverð sjónarhorn á viðkvæmni og mennsku með því að opna gátt fyrir hið yfirnáttúrulega til að flæða inn í jarðneskt líf.

Jasa Baka er fjöllistakona, kanadískur Vestur-Íslendingur, sem hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2017. Hún útskrifaðist með MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Árið 2008 útskrifaðist hún með BA-gráðu í myndlist frá Concordia University í Tiohtiá:ke (Montréal), með sérhæfingu í leikhúshönnun. Hún hefur sýnt verk sín og gjörninga á fjölmörgum stöðum á Íslandi og í Kanada en einnig í New York og Aþenu.

Petra Hjartardóttir er listakona sem vinnur skúlptúra og innsetningar í ýmsa miðla eins og silfur, keramík og textíl. Hún hefur sýnt verk sín í galleríum og söfnum á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig sótt gestavinnustofur í Noregi, Frakklandi og á Ítalíu. Petra útskrifaðist með MFA-gráðu í skúlptúr frá Yale School of Art og er með BFA-gráðu í myndlist frá Hunter College í New York.

Sýningin verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar en verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á að senda inn tillögu að sýningu í safninu og láta rödd sína heyrast. Það er listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert. Nöfn þátttakenda og frekari upplýsingar verða birtar síðar.

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0