Álfheiður Ólafsdóttir og Sigríður Oddný Jónsdóttir opna sýninguna
“Ég syng af gleði” í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Laugardaginn 15. júní kl. 14 -16.
Sýningin er opin á verslunar tíma. Virka daga: 10 – 18:00 Laugardaga: 11 – 16:00.
Álfheiður er alin upp í sunnlenskri sveit, hún hefur unun af þvi að mála úti í náttúrunni í flæði og af fingrum fram. Þar sem ljúfur blær sumars umlykur hana. “Gleði mín er einlæg, að skapa eitthvað óvænt og áhugavert úti í náttúrunni og finna orku jarðar umlykja mig”
Álfheiður er grafískur hönnuður að mennt frá MHÍ 1990
Sigríður Oddný Jónsdóttir, Sjoddý, ólst upp á Akureyri en býr nú jafnt í Hafnarfirði og í Eyjafjarðarsveit. “Myndirnar mínar eru innblásnar af íslenskri náttúru. Það sem heillar mig í myndsköpun er að raða einföldum formum, glaðlegum litum og línum á myndflötinn”
Sjoddý útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2013.
Álfheiður og Sjoddý eiga að baki fjölda einkasýninga og samsýninga