Gerðarsafn – SKÚLPTÚR OG SMÖRRE

Gerðarsafn – SKÚLPTÚR OG SMÖRRE
30. nóvember kl. 18:00

SKÚLPTÚR OG SMÖRRE er hugguleg kvöldstund í Gerðarsafni fyrir fullorðna þar sem við vinnum að gerð skúlptúra, frá hugmynd að listaverki. Listasmiðjan er hugsuð sem skemmtileg og skapandi upplifun undir handleiðslu myndlistarmanns sem mun leiða gesti inn í heim skúlptúrsins.

Smiðjan verður leidd af myndlistarmanninum Erni Alexander Ámundasyni þar sem verður unnið að gerð gifs skúlptúra.

Á Fimmtudeginum langa bjóða listasöfn og sýningarstaðir upp á lengdan opnunartíma og sérvalda viðburði en opið er í Gerðarsafni til 21 þetta kvöld.

Verð fyrir SKÚLPTÚR OG SMÖRRE er 12.900,-

Innifalið í kvöldstundinni er aðgangur að sýningum safnsins ásamt léttum veitingum frá veitingastaðnum Króníkunni, smurbrauð og vínglas/óáfengur drykkur.

Til að bóka pláss eða fá frekari upplýsingar sendið tölvupóst á netfangið [email protected] eða hringið í síma 4417601 á opnunartíma safnsins.

RELATED LOCAL SERVICES