GJÖFIN FRÁ AMY ENGILBERTS


Mynd: Hulda Vilhjálmsdóttir, Kona í fullri reisn, 2001.

 

GJÖFIN FRÁ AMY ENGILBERTS

Sýning á verkum samtímalistamanna sem Listasafn Íslands hefur eignast fyrir tilstuðlan listaverkasjóðs Amalie Engilberts.

Föstudaginn 8. mars kl. 20

Gjöfin frá Amy Engilberts
Orðið velunnari heyrist ekki oft í umræðunni þegar fjallað er um safnkost listasafna. Velunnarinn kemur þó ósjaldan við sögu í starfsemi þeirra og framlag hans er órjúfanlegur þáttur í sögu uppbyggingar safneignar Listasafns Íslands. Amalie Engilberts var einn fjölmargra velunnara safnsins. Hún var dóttir Jóns Engilberts listmálara og Tove Engilberts, fædd árið 1934 í Danmörku og lést í desember árið 2007. Amalie, eða Amy eins og hún var jafnan kölluð, var vinsæl spákona hér á landi og fékkst við dulspeki í fjölda ára, og þeir sem þekktu hana lýstu henni sem vel lesinni heimskonu.

Þegar Amy lést ánafnaði hún af rausnarskap Listasafni Íslands fjármuni til kaupa á nýjum verkum í safneign safnsins. Safnið hefur hlotið dánargjafir áður, en þetta var í fyrsta sinn sem slíkri gjöf var ætlað að auka við safneignina með skipulögðum hætti. Með gjöfinni fylgdu skilyrði um það hvernig fénu skyldi ráðstafað: til kaupa á nýrri íslenskri myndlist næstu tíu árin, ásamt sýningu á þeim að þessum tíu árum liðnum. Þannig vildi Amy heiðra minningu föður síns.

Verkin sem innkaupanefnd Listasafns Íslands hefur keypt undanfarin tíu ár úr sjóði Amy endurspegla þann fjölbreytileika sem er ríkjandi hjá starfandi listamönnum í dag. Nokkrar innkaupanefndir hafa komið að því að velja verk til kaups og er þetta safn verka áhugavert þversnið listamanna sem eiga mislangan starfsaldur að baki.

Verk eftirfarandi listamanna eru á sýningunni:

Bjarki Bragason, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Thoroddsen, Helgi Þórsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Hulda Vilhjálmsdóttir, Jeannette Castioni, Jón Axel Björnsson, Magnús Helgason, Pétur Thomsen, Sigga Björg Sigurðardóttir og Þórdís Aðalsteinsdóttir.

Sýningarnefnd: Dagný Heiðdal, Harpa Þórsdóttir, Júlía Marínósdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir

iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Soffía Sæmundsdóttir

      Soffía Sæmundsdóttir

      Lokadagur sýningar Soffíi Sæmundsdóttur Inn á milli í Gallerí Fold við Rauðarárstíg er laugardagurinn 11. mars. Soffí...

      Leskaflar í listasögu Þorsteinn Helgason

      Leskaflar í listasögu Þorsteinn Helgason

      Leskaflar í listasögu: frá endurreisnar til impressjónisma Höfundur: Þorsteinn HelgasonÍ þessari bók er myndlistars...

      Durgur 2018 tónlistarhátíð

      Durgur 2018 tónlistarhátíð

      Durgur, Tónlistarhátíð alþýðunnar verður haldin á Snæfellsnesi um páskana. Þar fjölbreytileikanum er fagnað, allskonar l...

      Guðmundur Thorsteinsson (Muggur) 1891- 1924

      Guðmundur Thorsteinsson (Muggur) 1891- 1924

      Guðmundur Pétursson Thorsteinsson, þekktur sem Muggur, var íslenskur listamaður fæddur Bíldudal. Sjá fleiri verk efti...