Norræna húsið býður ykkur hjartanlega velkomin á opnun fyrstu sýningar ársins:
Ripples: Shifting Realities in the North / Gárur: umbreytingar á norðurslóðum.
Á sýningunni mætast list og vísindi í rannsókn á þeim hröðu og djúpstæðu breytingum sem eiga sér stað á norðurslóðum. Á tímum loftslagsbreytinga og samfélagslegra umbreytinga er mikilvægt að skapa vettvang fyrir samtal milli menningarheima og kynslóða. Með ljósmyndum, myndböndum, textíl, málverkum og innsetningum eru settar fram fjórar ólíkar listrænar nálganir þar sem umhverfisvísindi, þekking frumbyggja og ímyndunarafl listarinnar mætast.
Á sama tíma opnar barnasýningin Norðrið á barnabókasafni. Í báðum rýmum eru gestir hvattir til að íhuga samband manns og náttúru, menningarlegt mikilvægi norðursins og siðferðilegar afleiðingar umhverfisbreytinga. Í samstarfi við skóla og í gegnum fjölbreytta viðburði í vetur verður norðrið skoðað út frá sjónarhornum ólíkra kynslóða og samfélaga.
Listamenn: Britta Marakatt-Labba · Ivínguak Stork Høegh · Josefina Nelimarkka · Þorvarður Árnason. Sýningarstjóri: Ásthildur Jónsdóttir
Verið hjartanlega velkomin!
Léttar veitingar í boði finnska sendiráðsins á íslandi og ræðisskrifstofu Grænlands á Íslandi.
Dagskrá opnunar:
17:00 – ávarp, Sabina Westerholm, forstöðumaður Norræna hússins
17:05 – ávarp, Ásthildur Jónsdóttir, sýningarstjóri
17:15 – opnun sýningar, Ville Canell, sendiherra Finnlands á Íslandi.



