Draumaland; Dr. Pétur Pétursson

Draumaland
Listasafn Reykjavíkur býður gesti velkomna á einstaka sýningarleiðsögn með Dr. Pétri Péturssyni, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, um sýninguna Draumaland á Kjarvalsstöðum.

Sýningin Draumaland beinir sjónum að fantasíuverkum Kjarvals sem innihalda dulspekilegar og trúarlegar vísanir og táknmyndir. Auk verka Kjarvals eru sýnd málverk Einars Jónssonar. Í leiðsögninni mun Dr. Pétur tengja verk Kjarvals við heimspekilegar og trúarlegar hugmyndir sem hafa mótað íslenskt samfélag og menningu.

Dr. Pétur Pétursson hefur starfað sem fræðimaður og kennari við Háskóla Íslands í áratugi og er þekktur fyrir rannsóknir sínar á tengslum trúarbragða, samfélags og menningar. Hann hefur birt fjölda greina og bóka um kirkjusögu, trúarbragðafræði og áhrif kristni á íslenskt samfélag, og hefur verið virkur þátttakandi í fræðilegri umræðu um menningararf og sjálfsmynd Íslendinga.

Aðgangsmiði á safnið gildir. Frítt fyrir árskorthafa og menningarkorthafa.

Sunnudag 17. ágúst 14.00
Kjarvalsstaðir

RELATED LOCAL SERVICES