Aldís Arnardóttir sýningarstjóri
Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir sýningarstjórar sýningarinnar Tímalög

Líðandin – la durée: Leiðsögn sýningarstjóra

Sunnudag 21. janúar kl. 14.00 á Kjarvalsstöðum

Leiðsögn með Aldísi Arnardóttur, sýningarstjóra sýningarinnar Líðandin – la durée.

Á sýningunni eru mörg sjaldséð verk, einkum frá fyrri hluta starfsævi Jóhannesar Sveinssonar Kjarval (1885-1972).

Á öðrum áratug síðustu aldar varð Kjarval fyrir áhrifum frá ríkjandi liststraumum í Evrópu, þar sem sundurgreinandi form og uppbrot sjónarhornsins voru meðal helstu einkenna ýmissa framúrstefnuhreyfinga, einkum kúbista og fútúrista.
Kjarval var ekki bundinn á klafa ákveðins stíls eða hugmyndafræði heldur leitaði víða fanga og vann úr stefnum og stílum á persónulegan hátt. Titill sýningarinnar, Líðandin – la durée, vísar í kenningar franska heimspekingsins Henris Bergson (1851-1941) sem var vel þekktur meðal almennings og lista- og menntamanna í Evrópu og Bandaríkjunum í upphafi tuttugustu aldar.

Á sýningunni er leitast er við að skoða hvernig áhrif hugmynda Bergsons birtast í myndmáli Kjarvals, frá námsárunum þar sem hann tekst á við tímann sem líðandi innan sömu myndar með því að brjóta upp formið og skapa þannig hreyfingu og flæði. Síðar sést hvernig Kjarval vinnur með tímann sem endurtekningu í landslagsmyndaröðum þar sem hann endurtekur myndefnið æ ofan í æ frá sama stæðinu. Með endurtekningunni nær Kjarval að kafa djúpt í skynjun sína á náttúrunni og tímanum sem hinum eiginlega rauntíma eða líðandi.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

RELATED LOCAL SERVICES