Listval – Hallgrímur Árnason

Verið velkomin á opnun sýningar Hallgríms Árnasonar, Opnar skjöldur, föstudaginn 18. ágúst kl. 17–19 í Listval að Hverfisgötu 4.

Orka, hvatvísi og undarlegt jafnvægi kyrrðar og óreiðu einkenna myndflöt Hallgríms. Verkin fjalla um tilfinningalega afstöðu og viðbrögð Hallgríms við stað og stund og sýna áköf form, liti og línur spretta fram og breiða úr sér. Hann leyfir því óvænta að taka völdin. Eitt hugskot verður að hreyfingu, athöfn að hugskoti, eitt leiðir af öðru. Við horfum inní fjölskrúðugan hugarheim listamannsins, afstæða tilveru, og látum hugann reika, rétt á meðan við gleymum okkar eigin stað og stund.

Hallgrímur Árnason (f. 1988) býr og starfar í Vínarborg. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Vín, m.a. undir leiðsögn þýska listamannsins Daniel Richter. Hallgrímur hefur tekið þátt í sýningum erlendis s.s. samsýningu á vegum sendiráðs Íslands í Vín. Í febrúar síðastliðnum opnaði hann sína fyrstu einkasýningu, Fehlerhaft [kœtlʏð], í Vínarborg. Sýningin Opnar skjöldur, er hans fyrsta sýning á Íslandi.

RELATED LOCAL SERVICES