Harpa – Eldbjørg og Tortelier

Harpa
Eldbjørg og Tortelier – Sinfón­íu­hjóm­sveit Íslands
12. október kl. 19:30

EFNISSKRÁ:
Gabriel Fauré Forleikur að Pénélope
Jean Sibelius Fiðlukonsert
Yan Pascal Tortelier Nostalgie
Ernest Chausson Sinfónía í B­dúr

HLJÓMSVEITARSTJÓRI:
Yan Pascal Tortelier

EINLEIKARI:
Eldbjørg Hemsing

Yan Pascal Tortelier var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 2016–2019 og snýr nú aftur með spennandi efnisskrá í farteskinu þar sem tilfinningaþrungin og glæsileg tónlist frá Frakklandi og Finnlandi er í aðalhlutverki. Einleikari á tónleikunum er hin unga, norska fiðlustjarna Eldbjørg Hemsing sem á undanförnum árum hefur haslað sér völl sem einn kraftmesti fiðluleikari sinnar kynslóðar í Evrópu. Margir hrifust til að mynda af leik hennar við afhendingu Nóbelsverðlaunanna 2021 sem sjónvarpað var um víða veröld. Hún leikur hér hinn ægifagra fiðlukonsert Sibeliusar, ástaróð tónskáldsins til hljóðfærisins þar sem hugmyndaflug og einstakt tónmál hans nýtur sín til fulls. Tónleikarnir hefjast á hrífandi en sjaldheyrðum forleik franska tónskáldsins Gabriels Fauré að óperunni Pénélope frá 1913, sem samin var upp úr efni Ódysseifskviðu. Eftir hlé hljómar svo hin stórbrotna Sinfónía í B­dúr eftir Ernest Chausson. Chausson var staksteinn í frönskum tónsmíðum í lok 19. aldar og fléttaði ólíkum stílbrigðum samtíðar sinnar saman í verk sem býr jöfnum höndum yfir dramatískri stærð og ljóðrænni fágun.

Viðburðahaldari:
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Kaupa miða hér!

RELATED LOCAL SERVICES