Ljósmynd af sýningunni heima eftir Hönnu Siv Bjarnardóttur

Heima: Ný sýning í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur

Heima er yfirskrift nýrrar sýningar í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur með ljósmyndum eftir Hönnu Siv Bjarnardóttur.

Hanna heimsótti nokkra af eldri íbúum Stokkseyrar. Í stuttri heimsókn er hægt að komast að ýmsu um manneskjuna sem þar býr en heimilið endurspeglar persónuleika og sögu fólks.

Fólk safnar að sér húsgögnum og smáhlutum, sumir hlutir hafa mikið tilfinningalegt gildi á meðan öðrum er hent eftir stutta viðkomu á heimilinu.

„Í litlu samfélagi þekkjast allir og vita nokkurn veginn hvað er að gerast í lífi hvers og eins. Ég kannast við allt fólkið sem ég heimsótti en hafði komið heim til fæstra. Það er sérstök upplifun að koma í heimsókn til alls þessa fólks eftir að hafa ímyndað mér árum saman hvernig heimili þeirra er, en oft eru þau allt öðruvísi en ég sá fyrir mér“.                                                                        -Hanna Siv Bjarnardóttir

Sýningin stendur til 29. maí 2018.

Hanna Siv Bjarnardóttir útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum í janúar 2017. Þetta er fyrsta einkasýning hennar í opinberu rými. Hún hefur sett upp yfirlitssýningu á verkum sínum á kaffihúsinu Kaffigott á Stokkseyri, ásamt samsýningum og útskriftarsýningu í Ljósmyndaskólanum.

Nánari upplýsingar hér

RELATED LOCAL SERVICES