Louise Wolthers flytur erindi Eftirlit, list og ljósmyndun

Fimmtudaginn 18. janúar kl. 12 flytur Louise Wolthers erindi um rannsóknarverkefni sitt ÁHORF! Eftirlit, list og ljósmyndun (2016-2017) og nokkur lykilverk sem voru á samnefndri sýningu í Hasselblad Center í Gautaborg, í Kunsthall Aarhus og C/O í Berlín.
Louise mun auk þess að fjalla um væntanlega sýningu sem líta má á sem framhald af þeirri fyrri og nefnist Sjónsvið dróna: herðnaður, eftirlit, mótmæli (2018). Bæði þessi verkefni vekja upp spurningar um hlutverk ljósmyndunar í fjölsæissamfélagi – og varpa ljósi á hvernig megi beita fjölsæinu sjálfu til að vinna gegn auknu eftirliti og alsæi. Þjóðminjasafn Íslands
Louise Wolthers er yfirmaður rannsóknasviðs og sýningarstjóri hjá Hasselblad stofnunni í Gautaborg. Hún lauk doktorsprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2008 og fjallaði doktorsritgerð hennar um ljósmyndir og söguritun. Louise vinnur nú að rannsóknarverkefni um millistríðsárin, ljósmyndun og mannréttindi. Louise Wolthers er eftirsóttur fyrirlesari og  sýningarstjóri og hafa bæði skrif hennar í fræðirit og sýningar við Hasselblad stofnunina og önnur listasöfn vakið mikla athygli, má þar nefna sýninguna ÁHORF! Eftirlit, list og ljósmyndum og sýningar sænska ljósmyndarans Kent Klich með ljósmyndum frá Gaza svæðinu og hollensku listakonunnar Rineke Dijkstra sem hlaut Hasselblad verðlaunin árið 2017.

Fyrirlesturinn er hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018.

RELATED LOCAL SERVICES