Rebekka Blöndal – Síðdegistónar í Hafnarborg

Föstudaginn 4. september kl. 17 mun söngkonan Rebekka Blöndal koma fram á fyrstu tónleikum tónleikaraðarinnar Síðdegistónar í Hafnarborg, þar sem hún mun flytja lög stórsöngkonunnar Billie Holiday.

Rebekka er ein efnilegasta jazzsöngkona landsins og ætlar hún að túlka lög Billie á sinn hátt. Rebekku til halds og trausts verða þeir Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Haraldur Ægir Guðmundson á kontrabassa. Holiday skildi eftir sig ótal margar perlur, margar þeirra magnþrungnar ballöður og ástarlög og verður það helsta sem unnendur hennar þekkja flutt á tónleikunum.

Síðdegistónar í Hafnarborg er glæný tónleikaröð sem fram fer einn föstudag í mánuði frá september til maí. Tónleikaröðin er studd af Tónlistarsjóði, auk Hafnarborgar, og listrænn stjórnandi er Andrés Þór Gunnlaugsson. 50 sæti verða í boði á tónleikanna og eru gestir beðnir um að panta miða í gegnum tölvupóst, [email protected], eða í síma 585 5790. Aðgangur er ókeypis.

Tónlistin er mín ástríða

Rebekka Blöndal lauk framhaldsprófi í djasssöng í sumar fimm árum eftir að hún hóf nám. Á sama tíma afrekaði hún að ljúka mastersnámi og eignast tvö börn. Nú stefnir hún á að koma sterk inn í tónlistarlífið á Íslandi.

Sjá meira  hér

Strandgata 34 220 Hafnarfjörður

5855790

[email protected]

hafnarborg.is/



CATEGORIES




iframe code

NEARBY SERVICES

  • Best of Iceland

    Best of Iceland
  • Related Articles

      Rauður þráður Hildar

      Rauður þráður Hildar

      Á Kjarvalsstöðum, safni Listasafns Reykjavíkur við Klambratún, stendur nú yfir sýningin Rauður þráður, yfirgripsmikil sý...

      Eldheimar Eldfjallasafn

      Eldheimar Eldfjallasafn

      ELDHEIMAR er gosminjasýning. Sýningin miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973, sem án efa telst til stærs...

      Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar

      Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar

      Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar er elsta starfandi vélsmiðja landsins. Smiðjan sem er nánast í upprunalegu formi ber...

      Vala Fannell með fyrirlestur í Listasafninu

      Vala Fannell með fyrirlestur í Listasafninu

      Þriðjudaginn 13. október kl. 17-17.40 heldur Vala Fannell, leikstjóri og verkefnastjóri nýrrar sviðslistabrautar Menntas...