Fyrir hundrað árum fæddist myndlistarmaðurinn Eiríkur Smith Finnbogason í Hafnarfirði, og bjó þar alla sína æfi, fyrir utan nám í Kaupmannahöfn og París, strax eftir seinna stríð. Í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar er nú í sumar yfirlitssýning á verkum þessa listamanns, Í sátt við efni og anda / Of Substance and Essence í sýningarstjórn Aldísar Arnardóttur. Listferill Eiríks er litríkur, sem sveiflast í samtali við hið huglæga og hinu hlutlæga. Í gegnum árin tók nálgun hans miklum breytingum, eins og sjá má á þessari fínu sýningu. Enda leitaði Eiríkur Smith endalaust að nýjum slóðum á löngum og farsælum ferli sínum sem skapandi myndlistarmaður. Árið 1990, skömmu eftir að Hafnarborg tók til stafa, gaf Eiríkur safninu, í sínum heimabæ, hátt í 400 verk til varðveislu. Enda mikil veisla að sjá og kynnast listamanninum Eiríki Smith í Hafnarborg, en sýningin stendur í allt sumar.










