Sunnudaginn 28. apríl kl. 20 fara fram í Hafnarborg tónleikar Mathiasar Halvorsens,
píanóleikara, og Gunnars Gunnsteinssonar, tónskálds. Flutt verða verk Gunnars úr
verkaröðinni Stefnuyfirlýsing húsvarðar, ásamt því sem heyra má verk Richards Wagners og
Johanns Sebastians Bachs endurmótuð af Mathiasi Halvorsen. Tónleikarnir eru hluti af
samtímatónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðönum.
Yfirskrift tónleikanna, „Ég trúi á betri heim“, er fengin úr verki tónskáldsins Gunnars
Gunnsteinssonar, Stefnuyfirlýsingu húsvarðar (e. A Janitor's Manifesto) sem Gunnar mun
koma til með að flytja á tónleikunum. Verkaröð Gunnars er samansafn frásagna úr
uppdiktuðum sagnaheimi húsvarðar sem endurspeglar á skapandi hátt samtíma okkar á
þessum frumstigum fjórðu iðnbyltingarinnar.
Píanóleikarinn Mathias Halvorsen afhjúpar afstöður samtímans til listarinnar og beinir
sjónum að vægi sögunnar í samtímanum, með endurliti í söguna þar sem hann endurmótar
hljóð- og hugmyndaheim þekktra verka tónlistarsögunnar úr fórum tónskáldanna Bachs
(1685-1750) og Wagners (1813-1883). Þá má til gamans geta að við þetta tækifæri mun í
fyrsta sinn heyrast tónlist frá á 18. og 19. öldinni á tónleikum Hljóðana.
Aðgöngumiðar eru seldir í Hafnarborg: almennt miðaverð er 2.500 krónur og er verð fyrir
eldri borgara og námsmenn 1.500 krónur.
Gunnar Gunnsteinsson, tónskáld, lærði tónsmíðar í Amsterdam á árunum 2011-2015. Að
undanförnu hafa verk Gunnars snúist um samþættingu tónlistar og talaðs máls. Í gegnum
frásögnina má finna ákveðið frelsi til þess að nýta tónlistaráhrif úr ólíkum áttum svo að úr
verði einhvers konar heild. Nýjasta útgefna verk Gunnars er hljómplatan A Janitor's
Manifesto sem kom út hjá útgáfunni Futura Resistenza í Brussel árið 2023. Verkið hlaut
góðar viðtökur meðal annars í tónlistartímaritinu The Wire Magazine. Í verkinu er unnið með
talað mál og karakterstúdíu en í því leikur skuggasjálf Gunnars, „Janitorinn“, aðalhlutverkið.
Gunnar er búsettur í Reykjavík.
Mathias Halvorsen, píanóleikari, er búsettur í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni en kemur
reglulega fram á tónleikum víðs vegar um Evrópu, ýmist sem einleikari eða í samspili, og
flytur allt frá sinni eigin tónlist yfir í nýstárlegar og skapandi túlkanir á hinum hefðbundnu
tónbókmenntum. Þeirra á meðal er hljóðritun Mathiasar á verki Bachs, Das Wohltemperierte
Klavier (BWV 846–893), sem kom út hjá Backlash Music útgáfunni árið 2018 undir heitinu
The Well-Prepared Piano, Vol. 1. Árið 2020 fylgdi svo útgáfan On Goldberg Variations, sem
unnin var ásamt Jan Martin Gismervik, þar sem brugðið var nýju ljósi á Goldberg-tilbrigði
Bachs. Árið 2024 er loks væntanleg útgáfan On Palestrina sem kemur út hjá sama útgefanda.
Hljóðön, samtímatónleikaröð Hafnarborgar, er sérstaklega tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar,
þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður
ókunnar slóðir en tónleikaröðin hefur verið hluti af dagskrá Hafnarborgar síðan 2013.
Tónleikarnir njóta stuðnings Tónlistarsjóðs.