Gróska – The Forgotten Coast

Gróska
Chris Burkard – The Forgotten Coast
1. desember kl. 19:00 – 21:30

Föstudaginn 1. desember næstkomandi munum við ásamt Chris Burkard, frumsýna nýja stuttmynd hans: ‘The Forgotten Coast’.

Á staðnum verður hægt að kaupa útprentaðar ljósmyndir og bækur sem Chris hefur gefið út í gegnum tíðina og mun Chris sjálfur vera á svæðinu og árita fyrir þá sem vilja.

Chris Burkard er sjálflærður, margverðlaunaður ljósmyndari sem hefur mikla ástríðu fyrir náttúru Íslands og höfum við fengið að fylgjast náið með ævintýralegu ferðalögum hans síðustu ár.

‘Forgotten Coast’ er ein af þeim ferðum, en þar lagði Chris af stað sumarið 2022 ásamt þeim Steve Fassbinder og Cameron Lawson með því markmiði að hjóla 400 kílómetra þvert yfir alla suðurströnd Íslands á aðeins 7 dögum.

Margar áskoranir urðu á vegi þeirra þar sem þeir þurftu meðal annars að fara yfir 41 á og fljót og hjóla á mjög krefjandi undarlagi meiri hluta leiðarinnar.

Chris mun ávarpa gesti og sega frá bæði hápunktum og lágpunktum ferðarinnar og taka við spurningum úr sal.
Í boði verða léttir drykkir frá Ölgerðinni.

Takmarkað magn er af miðum en þá er hægt að nálgast hér

RELATED LOCAL SERVICES