Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson

Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson: Á hafi kyrrðarinnar – listamannsspjall
Sunnudaginn 11. júní kl. 13

Sunnudaginn 11. júní kl. 13 mun Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og segja frá verkum sínum á nýopnaðri sýningu hennar, Á hafi kyrrðarinnar, sem stendur yfir í safninu í sumar. Á sýningunni eru sýnd bæði ný og eldri verk þar sem Hildur tvinnar saman aðferðum vefnaðar og málaralistar auk útsaumsverka, nýrra blekteikninga og vatnslitaverka. Sýningarstjóri er Aldís Arnardóttir.

Hildur hefur búið meirihluta ævi sinnar í Cleveland í Ohio en heldur sterkt í rætur sínar á Íslandi. Hún kemur reglulega hingað til lands, ferðast, gengur um og tekur ljósmyndir, sem hún vinnur síðan úr þegar heim er komið. Auk þess að leita fanga í landslagi Íslands við gerð verka sinna hefur Hildur um árabil gert myndraðir sem byggja á heilaskönnunum og himintunglum, þar sem handlitaðir silkiþræðir tvinnast saman í dúnmjúku yfirborði og verða að athvarfi frá amstri hversdagsins.

 

 

HÚN vefur íslenskt landslag úr silkiþráðum, stóra striga úr silki þar sem fyrir ber jökla og ár, himin og jörð. Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson heitir myndlistarmaðurinn að baki verkunum, 

“Ég vil að verkin séu á mörkum þess að vera abstrakt og realismi – mér finnst það einmitt skapa meiri spennu í verkinu,” segir Hildur.

Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson (f. 1963) lauk MFA-gráðu í myndlist frá Háskólanum í Kent State árið 1995 og BFA-gráðu frá sama skóla árið 1991. Hún nam myndlist við Cleveland Institute of Art 1985-1988 og lagði einnig stund á nám í arkitektúr við Kent State á árunum 1983-1985Verk Hildar hafa verið sýnd víða, meðal annars í TANG-safninu, Tibor de Nagy-galleríinu og listahátíðinni Armory Show í New York, Samtímalistasafninu í Cleveland, William Busta-galleríinu í Cleveland, auk Listasafns Reykjavíkur og Listasafns Íslands. Árið 2008 hlaut Hildur hin virtu verðlaun Cleveland Arts Prize í Cleveland Museum of Art í Ohio og árið 2015 hlaut hún viðurkenningu The Louis Comfort Tiffany Foundation.

RELATED LOCAL SERVICES