Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár

Í tilefni af 140 ára afmæli Listasafns Íslands verður opnuð ný sýning þar sem þessara tímamóta er minnst.  Sýningin ber heitið Innsýn, útsýn – Listasafn Íslands í 140 ár en þar má sjá má verk eftir hátt í 100  listamenn,  mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í tímans rás.

Sýningunni er skipt upp í fjóra hluta sem eru:  samfélag; myndir af manneskjum; Form, línur, litir og maður og náttúra. Þessi fjögur þemu skarast vitaskuld en verk listamanna sem horfa út – á landið, nánasta umhverfi, samfélagið eða heiminn allan – veita gjarnan nýja sýn sem leiðir til sjálfsuppgötvunar einstaklinga og samfélags. Að sama skapi má segja að þeir listamenn sem horfa í verkum sínum inn á við, í könnun á sjálfinu, sögu eða menningararfi, opni um leið sýn út á við; víðari heimsmynd.

Á sýningunni eru hátt í 200 verk eftir tæplega 100  listamenn, þar á meðal málverk, skúlptúrar, ljósmyndir, vídeó, innsetningar og bókverk. Verkin á sýningunni spanna tímann frá stofnun safnsins, þegar safneignin samanstóð fyrst og fremst af verkum eftir norræna listamenn eins og Önnu Ancher og Berthu Wegmann, til tíma frumkvöðlanna, Þórarins B. Þorlákssonar og  Jóhannesar S. Kjarvals,  eftirstríðsáranna sem Nína Tryggvadóttir og Louisa Matthíasdóttir eru fulltrúar fyrir og fram á tímaskeið framúrstefnumanna á borð við Magnús Tómasson og Sigurð Guðmundsson.  Á sýningunni eru einnig glæný verk eins og En þú ert samt of brún fyrir Íslending eftir Melanie Ubaldo, sem eru til marks um hvernig myndlistarmenn eru sífellt að kljást við ný viðfangsefni og breytingar í samfélaginu. Verkin á sýningunni gefa ákveðna innsýn í listasögu okkar, frá öndverðu og til okkar daga en jafnframt gefur að líta alþjóðlega vídd í verkum eftir heimsþekkta listamenn, svo sem Edward Munch, Pablo Picasso, Dieter Roth og Roni Horn.

Í tilefni af afmælinu  er gefið út sérstakt afmælisrit sem er nokkurs konar systurverkefni sýningarinnar en í það skrifa ýmsir fræðimenn meðal annars fyrrverandi safnstjórar  Listasafns Íslands um 140 verk úr safneigninni  og túlka þau hver með sínum hætti.

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0